Apr

6

Úr vetrardvala

6 April, 2006 | 1 Skilaboð

Nú fer að líða að sumri og Café Riis og þessi vefur fer að vakna úr vetrardvalanum. Þann 1. júní mun staðurinn opna fyrir sumarið með stórglæsilegu pizzahlaðborði. Næstu daga mun svo atburðadagatalið verða uppfært í samræmi við það sem hefur verið ákveðið fyrir sumrið.

Aug

23

Veitingastaðurinn / The Resturant
Frá og með deginum í dag verður Café Riis opið alla daga frá 11:30 til 21:00, grillinu verður þó lokað klukkan 20:00.
Vetraropnun Café Riis mun svo taka gildi þann 3. september. Í vetur kennir ýmissa grasa en þar ber helst að nefna Vinnustaða kareoke keppni, kínverskt hlaðborð, villibráðarveislu og síðast en ekki síst hið sívinsæla jólahlaðborð.

Jun

21

Nýjir eigendur Café Riis vilja nota tækifærið og þakka Hólmvíkingum og öðrum gestum staðarins frábærar viðtökur frá opnun staðarins nú í sumar. Einnig viljum við þakka öllum sem lagt hafa hönd á plóginn við að gera opnunina að veruleika kærlega fyrir aðstoðina.
 
1897

Jun

1

Opnunartilboð~ Opnunarhlaðborð Café Riis ~
Kæru Strandamenn, ferðamenn og aðrir menn!
Við, nýjir eigendur Café Riis á Hólmavík óskum ykkur gleðilegs sumars um leið og við auglýsum sumaropnun Café Riis.
Við opnum fimmtudaginn 2. júní með ítölsku pizza og pastahlaðborði sem stendur frá 17:00 – 20:00.

Laugardaginn 4. júní verður svo sjómannadagshlaðborð frá 18:00 – 21:00 (borðapantanir óskast í síma 451-3567 fyrir 2.júní).

Opnunartíminn í sumar verður 11:30 – 23:30 sun til fim og 11:30 – 03:00 á föstudögum og laugardögum.

« til baka

Tenglar