Um staðinn
Café Riis Hafnarbraut 39 510 Hólmavík

Árið 1996 þegar ráðist var í endurbætur á húsinu var lögð rík áhersla á að viðhalda upprunarlegu útliti hússins. Húsið skiptist í þrjá sali, aðalsal (gamla búðin), pakkhús og koníaksstofu. Samtals rúma salirnir um 100 matargesti. Í hverjum sal eru barir skreyttir útskornum galdratáknum.
Aðalsalur
Í aðalsal hússins er pláss fyrir um 60 matargesti. Þar er að finna aðal bar staðarins, salerni og eldhús. Gólfin í aðalsalnum eru úr rekavið af Ströndum.
Koníaksstofa
Á efstu hæð hússins er koníaksstofan. Þar er þægilegt að setjast niður eftir góða máltíð og slappa af. Stiginn og gólfn þar eru jafngömul húsinu eða yfir 100 ára gömul. Þar má einnig sjá upprunarlega máttarviði og bindiverk í veggjum hússins.
Pakkhúsið
Á árum áður var pakkhúsið bæði fiskverkunar- og sláturhús en síðar var þar geymsla m.a. fyrir sement, salt og áburð.
Í dag er pakkhúsið glæsilegur salur sem rúmar um 50 manns í sæti. Þar eru oft haldin böll, eða aðrar uppákomur. Þaðan er hægt að ganga út á verönd og njóta góðra veitinga í góðu veðri. Gólfin í pakkhúsinu eru úr rekavið af Ströndum.
Bragginn

Árið 1998 var hafist handa við endurbyggingu Braggans og stóðu þær endurbætur yfir allt til ársins 2002 en þá var Bragginn opnaður að nýju.
Eins og Café Riis þá er Bragginn staðsettur í hjarta Hólmavíkur, aðeins stuttan spöl frá veitingastaðnum Café Riis. Bragginn hefur nú verið endurbyggður í sinni upprunalegri mynd. Bragginn er einstaklega hentugur fyrir margskonar uppákomur, m.a. ættarmót, tónleika, dansleiki, námskeið, ráðstefnur, fundi og sýningar af ýmsu tagi.
Hólmavík

Hólmavíkurhreppur – www.holmavik.is – tekur yfir landsvæðið frá Kollafjarðarnesi í Kollafirði, um Tungusveit og frá Hrófá að Selá í Steingrímsfirði, yfir Steingrímsfjarðarheiði og allt inn í botn Ísafjarðar og að Kaldalóni í vestri. Steingrímsfjörður gengur inn úr vestanverðum Húnaflóa og er um 28 km langur.
Fyrir innan Hólmavík sem er stærsta þéttbýlið á Ströndum mjókkar fjörðurinn allmikið.
Hólmavík stendur við Steingrímsfjörð sunnanverðan og er stærsta kauptún í Strandasýslu, með rúmlega 450 íbúa. Hólmavík byggir afkomu sína að stæðstum hluta á sjávarútvegi.
Margvísleg þjónusta og verslun skiptir þó einnig miklu máli í atvinnulífinu og er ferðaþjónustan þar einn helsti vaxtarbroddurinn.
Hólmavík er aðeins 115 km frá þjóðvegi 1 og er kjörinn áfangastaður ef verið er að fara á Vestfirði.
Tenglar
- Café Riis á Facebook - Við erum á facebook !
- Hamingjudagar á Hólmavík (2.-4.júlí 2010) - Hamingjudagar eru líka á facebook